| 21 - | Guðmundur A. Kristjánsson |
Kostnaður vegna tengingar við Fjarhjálp Tölvumiðlunar er að lágmarki 0,25 klst. og er því 3.298 kr. án vsk. þann 01.01.2012. Sé þjónustu- og uppfærslusamningur ekki til staðar er kostnaður að lágmarki 1 klst.
Fjarhjálp er hugsuð til að leysa mál sem upp koma í símaþjónustu þar sem hagkvæmt er fyrir viðskiptavininn að málið sé afgreitt hratt enda oft erfitt að leysa flókin mál í símtali. Gerður er greinarmunur á Fjarhjálp annarsvegar og Fjartengingum hinsvegar. Fjartengingar eru eins og útköll nema að lágmarkið er 0,5 tímar í stað 1,5 tíma í útköllum. Í Fjartengingum losnar viðskiptavinurinn við ferðatíma og aksturskostnað. Í sumum tilfellum er Fjarhjálp notuð í stað Fjartengingar . Þetta á sérstaklega við um minni fyrirtæki sem vilja forðast fjárfestingu í nauðsynlegum búnaði til að styðja Fjartengingar.